Gott kvöld gott fólk og góðir selir! - Kæra bloggbók. Bloggfærsla 2...
Það hafa verið uppi harðvítugar deilur um hvernig skipan mála eigi að vera í rúmum Slóveníu förum Selavinafélagsins. Hver telur sína lausn vera besta, Stjáni vill hafa stelpurnar naktar í koddaslag 24/7 og er tilbúinn að sofa á svölunum fyrir vikið. Ég vill fá mitt eigið herbergi og setja þessar stúlku-kindur allar saman í eitt stórt hamingjusamt hjónarúm. Svo þetta eru mikil vandræði sem eiga sem Selavinafélagið stendur frammi fyrir.
Þar sem við erum 5 og hagkvæmast er að kaupa hús með 3 herbergjum þá er það staðreynd að lausnin felur í sér að einhverjir þurfa að deila herbergi sé það raunverulegur vilji allra að sofa í herbergi. Mér finnst það gefa augaleið strax þegar ég fer að hugleiða þetta vandamál að lausnin liggja í sjálfum bæjarlæknum. Við þurfum bara að skreppa úti garð og veiða hana á land. Þetta eru 4 mánuðir þar sem við eigum eftir að drekka af okkur hausana, lenda í fangelsi, stelpunum verður stolið, við eigum eftir að lenda í útistöðum við mafíuna, synda í Dóná, kaupa sel, selja sel, gefa sel, bjarga selum úr dýragarðinum, lenda í fangelsi o.sv.fr. Við eigum sem sagt eftir að gera allt allt allt annað en að læra.
Lausnin er semsagt þessi. Við skiptum þessu upp í viku vaktir þar sem þrír taka að sér að sofa á daginn og vaka á nóttinni aðra vikuna en hina vikuna er því öfugt farið. Fyrstu vikuna munu 2 einstaklingar sofa á nóttunni á meðan hinir 3 sem ætla sér að sofa á daginn fremja alskyns spellvirki og skipulagða glæpastarfsemi fram eftir nóttu. Þeir sem svo komast heim um hádegi (þeir sem ekki drukkna í Dóná eða lenda í fangelsi) vekja hina og hafa vaktskipti. Úthvíldu einstaklingar Selavinafélagsins taka þá dagvaktina og skella sér á stræti Ljublijana og fremja dólgslæti, gilja mann og annan og stunda almennt gjá- og saurlífi frameftir kvöldi. Með þessu móti munu allir geta sofið sínar 7 tíma vaktir og Selavinafélagið stundað skipulagða glæpastarfsemi allan sólahringinn án þess að einhver þurfi að kúra saman, fara í koddaslag eða sofa á svölunum!
Helena Slóveníufari benti mér á síðu sem að leiguþjónusta í Ljubliana heldur úti. Ég tel mig vera búinn að finna íbúðina okkar og hér koma upplýsingarnar:
Byggð árið 2003 og er hvorki meira né minna en í miðbænum (við verðum 101 slóveníurottupakk). Hún er einir 120 fermetrar. Hún er einar 3 hæðir! Öll húsgögn fylgja. Baðkerið er nuddpottur!!! Er með ýmsum lúxus, svo sem: ADSL, CENTRAL HEATING, innanhússkallkerfi, Kapalsjónvarpi, LOFTKÆLINGU, gasi, síma, arineldi, tvemur bílastæðum, bílskúr og kjallara!!! Og allt þetta fyrir skitnar €1.300 á mánuði
Gallinn er að það eru bara 3herbergi og þurfa því aðilar að hefja samband til að sambúðin gangi upp. Því er komin hér upp könnun hvernig við getum dreift íbúum í húsnæðinu. Er það Sandra og Sigrún í koddaslag 24/7, Tryggvi og Sandra, Tryggvi og Sigrún eða ég úti á svölum með einhverjum austur evrópskum furðufuglum?
Selavinur dagsins er klárlega Slóveninn Martin Strel eða "fiskimaðurinn" sem er uppnefnið á kallinum. Áður en haldið er lengra þá er nauðsynlegt að útskýra "fiskimanns" uppnefnið. Málið er að hann Martin vill í raun láta kalla sig "Selamanninn" enda er hann þekktur ástmaður sela, en vegna víðtækra fordóma slóvena gagnvart selum þá hefur hann af ótta við ofsóknir í heimalandi sínu tekið upp Fisks-viðurnefnið. Það er einmitt vegna þessa sem hinn margrómaði Slóveníuhópur heldur að utan í haust í þeim megintilgangi að leiðrétta misskilning meðal slóvena gagnvart selum og koma á góðum tengslum við þá. En nóg með það, afhverju er Martin maður dagsins? Ekki nóg með að hann elski seli, hann er að verða að einum slíkum sjálfur. Kappinn tók sig til og byrjaði á að synda Dóná endilanga, á meðan þerri ferð stóð þá varð hann fyrir mikilli geislun (enda veit alþjóð að sprænan atarna er í raun bara frárennslisskurður úr öllum Tjernóbýlum austantjaldsins). Vegna þessarar geislunar ásamt mikillar "nálægðar" við Dónarseli á leiðinni þá fluttist mikið af selagenum í Martin sem olli því að hann er smátt og smátt að verða að sel sjálfur. Þannig að núna finnur hann sig hvergi betur en í vatni, frjáls líkt og selirnir hálffrændur sínir. Martin synti síðan Yangtzeá í Kína endilanga, svo Mississippi í Bandaríkjunum. Enn það var ekki nóg, svo Martin tókst á við stærsta fljót heims sem er Amazon. Hann synti 5265km langt fljótið á 66dögum. Og kynntist mikið að vinum og vandamönnum á leiðinni, ekki bara selum heldur einnig Piranafiskum og krókódílum. Og þegar kappinn var spurður hvort það hafði ekkert gengið illa að falla í hópinn þá sagði hann bara: "Ég held að dýrin hafi sætt sig við mig. Ég er búinn að synda með þeim svo lengi að þau halda að ég sé eitt af þeim." Og vegna þessa er hann Martin heiðurselur dagsins og hlakka ég mikið til þess að busla með honum í Dóna er ég fer til Slóveníu og við munum saman berjast gegn fordómum þjóðarinnar gagnvart selum. Að því ónefndu að Sigrún okkar hefur ætlað sér að eignast kópa/börnin hans Martins og verður forvitnilegt hvers konar einstaklingar koma úr þeim leik! Stjáni P.
Verið öll hjartanlega velkomin í heilræðahorn Tryggva og Stjána. Hér munum við í náinni framtíð veita heilræði vegna hversdagslegra vandamála. Vandmál dagsins í dag sem allir glíma við eru páskarnir.
Páskar eru alveg ágætt fyrirbæri þar sem þeim fylgir eitt og annað skemmtilegt. Fyllerí, leti, sofa, borða,sofa, borða, borða meira og svona hitt og þetta. En eins og við höfum lært í kristinfræðunum góðu þá uppsker maður eins og maður sáir og það liggur í hlutarins eðli að aukið át á sér afleiðinguna auknar ferðir á klósetið. Ég kann ráð handa þeim sem virkilega vilja dekra við sig um páskana þegar þeir eru að kúka. Þegar fólk er farið að kúka 4-5 sinnum á dag getur það valdið sárindum í rassi. Allir þeir sem eiga örbylgjuofn og klósetpappír geta nýtt sér þetta ráð. Þeir þurfa einfaldlega að setja rúlluna í örbylgjuofninn 40 sekúndum áður en þeir fara á klósetið. Stilla á 500W og taka svo ilvolga rúlluna úr ofninum og tylla sér á setuna. Þegar þeir hafa lokið sér af er bara að þurrka rassinn vel með þægilegum ilvolgum pappírnum. Þetta er án efa það besta sem hægt er að gera til að hindra það að rassinn verði sár þegar það er búið að skeina sér of mikið!
Selakveðja og hafið það gott um páskana gott fólk.
Sæl, undanfarin ár hafa íslendingar fjölmennt á hátíð sem kallast Hróaskelda. Hef ég aldrei skilið afhverju það er. Er það vegna minnimáttarkenndar okkar gagnvart dönum vegna þess að þeir áttu okkur í nokkur ár og við lítum enn á þá sem miðpunkt heimsins, er það vegna þess að það var eini staðurinn þar sem það kostaði aðeins annan handlegginn að fljúga til er Flugleiðir riðu húsum með okurstarfsemi sinni eða er það vegna þess að það er svo auðvelt að kaupa sér H**s í Kristaníu? Nú veit ég ekki... En það sem ég veit er það að ég hef undanfarin tvö ár farið á ákaflega stóra og góða útihátíð í Þýkalandi og ætla ég að telja upp kostina við þá hátíð: Mörg af stærstu böndum heims spila þarna. Iceland Express fljúga á áfangastað sem er aðeins í klukkutíma fjarlægð frá tónleikastaðnum þannig að rútur og lestir koma þér áfangastað. Verðlag er MUN ódýrara en í Danmörku. Þessi staður liggur mun sunnar en Hróaskelda þannig að veðurfarið er mun betra. Miðinn er ódýrari en á skelduna. Mórall er mjög góður og hátíðin er haldin á Nurburgring sem er aðeins ein sögufrægasta formúlubraut í heiminum í dag. Vegna þess að þetta er haldið á kappakstursbraut þá er þorp á miðju tjaldsvæðinu með vatnsklósettum, börum, veitingarstöðum og það er alltaf hægt að fara leiðar sinnar gangandi á malbiki (sem að margir sem hafa farið á slíka hátíð vita að er HRIKALEGUR kostur að þurfa ekki að gera þarfir sínar á kamri og vaða upp á hné í drullu á gönguleiðum og tónleikasvæði ef að það kemur úrkoma). Í ár þá er komið frekar gott Line-up en enn eru 2mánuðir í þetta og því fleiri bönd eftir að hlaðast upp, þar sem ég er að reyna selja þessa hugmynd þá ætla ég að telja upp helstu nöfnin sem enn eru komin:
Linkin park, White stripes, Muse, The Hives, Arctic Monkeys, My chemical Romance, Razorlight, The Sounds, Funeral for a Friend, Evanescence, THE SMASHING PUMPKINS, Slayer, Kaiser Chiefs, Machine Head, Stone Sour, Wolfmother, Type o Negative, 30 seconds from MArs, Killswitch Engage, Papa Roach, KORN, Velvet Revolver, Travis, Megadeath, Amy Winehouse, Lamb of God... o.s.fr Ég taldi bara upp böndin hér sem mig persónulega langar til að sjá. Athugið að enn fleiri bönd spila þarna og ennþá fleiri eiga eftir að bætast við á næstu mánuðum.
Þannig að hver vill sýna lit og vera öðruvísi og koma með Stjánanum á Rock Am Ring...?
Nánari upplýsingar fyrir samanburð: www.rockamring.de www.roskilde-festival.dk
Hér með hefur heimasvæði Selavinafélagsins verið opnað. Eins og allir vita eru selir hálf mennsk dýr sem geta svipt sig hamnum og ganga á tvem jafnljótum þegar þeim hentar, segir jafnvel margur maðurinn að hálf færeyska þjóðin sé uppbyggð af þessum selmanneskjum. Þessi síða er haldin úti af tvem slíkum selum sem hyggja í víking alla leið til Slóveníu í haust til þess að kynna Slóvena fyrir eiginleikum sem selir hafa upp á að bjóða! endilega skiljið eftir athugasemdir um það sem þið viljið sjá hérna inná o.s.fr...
Og ef þið viljið komast í Selavinagrúppíuhornið þá þurfið þið bara að rekast á Tryggva meðan hann er drukkinn og ná þér og honum saman á mynd!